Styðjum foreldra í uppeldi og forvörnum

Fréttir um sí aukin innbrot, aukna glæpatíðni, slagsmál ungmenna, fjölgun í vímuefnameðferð og hækkun á verði fíkniefna er eitthvað sem við ættum að hafa áhyggjur af. Það er vel þekkt að þegar kreppir af verður sundrung og óregla meiri í þjóðfélaginu. Áfengisdrykkja eykst, glæpir aukast og kostnaður ríkisins við geð- og heilbrigðismál aukast einnig. 
  1. Við verðum að hlúa að barnafjölskyldum og passa að börn verði ekki úti í kuldanum á þessum erfiðu tímum. Það að börn fái ekki mat í skólum landsins eða geti ekki tekið virkan þátt í tómstundum eða líði illa inná heimili sínu sökum fjárhagsörðuleika foreldra er óásættanlegt.
  2. Við verðum að leggja hart að því að komandi kynslóð alist ekki upp við öryggisleysi, sundrung og neikvæðni.
  3. Það er kominn tími til að styðja við fjölskyldur. Rétta foreldrum hjálparhönd við að ala upp komandi þegna þessa lands.
  4. Þó forvörn skuli fara fram í menntakerfi landsins þá sýna rannsóknir að forvörn sem börn og unglingar fá frá heimilum sínum í sínu daglega lífi sé sú allra mikilvægasta.
  5. Við þurfum að virkja foreldra í forvarnarhlutverki sínu,við erum fyrirmynd barna okkar, þau læra það sem fyrir þeim er haft.
  6. Iðulega er talað um “unglingavandamál” en ég held að við ættum að líta nær okkur og tala frekar um “foreldravandamál”.  Styðjum foreldra til jákvæðs og skilvirks uppeldis. 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband