En ekki hvað?

Það er mjög mikilvægt að meðferð og sala á eignum ríkisbankana verði gegnsæ og að jafnræðisregla sé í virt í hvívetna. Það er samt raunveruleg hætta á að ef vinstri flokkar komast til valda að loknum kosningum að þá verði þessi fjölmörgu fyrirtæki sem eru í vanda og lenda í þessum eignarhaldsfélögum ríkisbankanna að þau dagi uppi þar. Fyrirtæki á samkeppnismarkaði eiga og verða að vera í eigu einstaklinga til að geta blómstrað á ný. En öllum er ljóst að ríkisbönkum ber að hámarka virði þessara fyrirtækja og tryggja að þau komist ekki í hendur sömu auðmanna sem misnotuðu svo frelsi okkar til athafna með hörmulegum afleiðingum fyrir alla landsmenn. Sýnum skynsemi og endurreisum atvinnulífið með traust, virðingu og gott siðferði að leiðarljósi.
mbl.is Ákvæði um opinber hlutafélög þurfa að vera skýr
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband